föstudagur, október 02, 2009

Ég var eitthvað að tuða yfir Kiljunni í föstudagskaffinu hér í vinnunni og þótti yfirmanninum lítið til skoðanna minna koma. Hann stakk upp á því ég væri bara með minn eigin bókmenntaþátt fyrst ég þættist vita svona mikið um málið.

Lítið mál að redda því.

Næsta sunnudag á Rás 1 ...

Ástarsögur af rithöfundum

Ástarsambönd rithöfunda hafa oft fengið á sig ævintýralegan blæ og sambönd para á borð við Mary og Percy Shelley, Sylviu Plath og Ted Hughes, Simone deBeauvoir og Jean Paul Sartre hafa ekki fengið minni athygli en bókmenntaverk þeirra. Samböndin hafa oft verið sviðsett af pörunum sjálfum þannig að svo virðist sem um óumflýjanleg örlög snillinga hafi verið að ræða og aðrir hafa tekið upp þráðinn og haldið áfram að bæta við mýtuna. Í tveimur þáttum halda Ásta Gísladóttir og Auður Aðalsteinsdóttir þeim spuna áfram og fjalla um samskipti slíkra rithöfundapara og hvort verk þeirra endurspegli mögulega samkeppnina á ritvellinum, baráttu kynjanna, togstreitu innan heimilisins og óhefðbundið hjónalíf sem einkennir stundum sambönd rithöfunda.

Auk fyrrgreindra para verður m.a. fjallað um áströlsku hjónin Vance og Netty Palmer, glæpasagnahöfundana Faye og Jonathan Kellerman, auk vísindaskáldsagnahöfundanna Judith Merril og Frederick Pohl, A.E. Jones og Homer Nearing, Kate Wilhelm og Damon Knight.

Umsjón: Auður Aðalsteinsdóttir og Ásta Gísladóttir


1. þáttur.
Flutt: sunnudagur 4. okt. 2009 kl. 10.15.
Endurflutt: 7. október 2009 kl. 20.30


2. þáttur.
Flutt: sunnudagur 11. okt. 2009 kl. 10.15.
Endurflutt: 14. október 2009 kl. 20.30

2 ummæli:

Sigga Lára sagði...

Og Kiljumaðurinn tuðaði til baka. ;)

Annars finnst mér að þið ættuð að taka hann á orðinu og gera þátt um texta Kurt Cobain. (Þó Corteney Love þurfi ekki endilega að vera útgangspunktur...)
Ég er soldið búin að vera með hann á heilanum. Alveg síðan í Lithium-æðinu á skólanum.
Aðallega... hvernig getur svona mikill fáviti samið svona góð lög? ;)

Ásta sagði...

Held að þú sért komin langleiðina með þinn eigin Cobain-þátt. Við bíðum spenntar eftir að heyra hann :)