Það voru því full varkárar skákkonur sem fóru í seinni skákina og tók hún dágóðan tíma. Mörg mistök voru gerð á báða bóga og tilviljun ein réði því að önnur stóð uppi sem sigurvegar (ég ég ég ég ég ég ég!!) Það er hins vegar ánægjulegt að segja frá því að karlkyns kúnnarnir á 22 eru ekki haldnir þeirri þráhyggju að konur að tefla þurfi nauðsynlega á þeirra aðstoð að halda. Ekki að við höfum ekki fengið aðstöð - einhver staðar rétt eftir að seinni skákin hófst mætti Hörður og veitti okkur ómetanlegan styrk sem almenn klappstýra fyrir báða mótherja.
Um fjögurleytið eftir að seinni skákin endaði (ég ég ég ég ég ég ég!!) óðum við blóðpolla upp á aðra hæðina og tókum til við tjúttið. Sjaldan hafa þrjár manneskjur verið jafn jákvæðar á dansgólfinu. Pixies, Clash, Rolling Stones og Michael Jackson á vondum degi var lýsandi fyrir stemninguna. Hvenær var diskói eiginlega úthýst af 22? Við gerðum þó okkar besta og þegar ljósin voru kveikt var klukkan að verða sex og gamlar kellingar búnar að vera alltof lengi á djamminu. Þrátt fyrir ýmis freistandi tilboð þar sem í boði voru áframhaldandi partý og brennivín héldum við heim á leið. Vorum næstum því búnar að týna
Gærdagurinn var síðan fullkomlega óinteresant og það eina markverða var að ég skellti mér í bíó - hugsanlega í fyrsta skipti á árinu. Við Skotta fórum að sjá Kill Bill Vol. 2 og þótti hin besta skemmtun. Og þannig var nú það.
4 ummæli:
Blogger bara farinn að blanda sér í kommentkerfin.
Sniðugt.
Takk fyrir gott kvöld, ég er næstum búin að jafna mig eftir tapið mikla og farin að plotta hefnd. Fallegar myndir!
En hey! Ég man ekki eftir neinum freistandi tilboðum um áframhaldandi eitt eða neitt! Þú hefur greinilega haldið þeim leyndum til að ná mér heim...
"Hey stelpur viljiði koma í partý ég á brennivín" er auðvitað með betri tilboðum sem maður fær kl. 6 á morgnana.
Skrifa ummæli